Mannlíf

Norræn myndbandasamkeppni fyrir hugmyndaríka krakka
Miðvikudagur 6. apríl 2022 kl. 13:30

Norræn myndbandasamkeppni fyrir hugmyndaríka krakka

Norræna verkefnið NordMar Biorefine sem Matís stýrir hefur sett af stað myndbandasamkeppni fyrir ungmenni á aldrinum 14-19 ára. Keppnin er opin öllum á þessum aldri á Norðurlöndunum, þar með talið á Íslandi.

„Markmiðið með myndbandakeppninni er að höfða til frumkvöðlahugsunar unga fólksins en með myndböndunum gefst því kostur á að setja fram sínar hugmyndir um hvernig nýta megi auðlindir hafs og vatns á nýjan eða betrum bættan hátt. Sérstök áhersla er lögð á þær auðlindir sem eru van- eða ónýttar. Myndböndin mega vera hvernig sem er, þ.e. leikin, heimildamyndir, teiknimyndir o.s.frv. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir besta myndbandið,“ segir í frétt frá Matís.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Nánari upplýsingar og skýringarmyndband á íslensku má finna á vefsíðu Matís hér:  https://matis.is/frettir/norraen-myndbandasamkeppni-vertu-med/ 

Og á vefsíðu NordMar Biorefine hér: https://bluebioportal.com/video-contest/ 

NordMar Biorefine verkefnið gengur út á það að kanna möguleikana sem felast í fullnýtingu þeirra sjávarauðlinda sem nýttar eru á Norðurlöndunum með lífmassaverum. Samhliða þeirri vinnu hafa Norræn lífmassaver verið nýtt sem fyrirmyndir áframhaldandi uppbyggingar Matís á lífmassaveri í Neskaupstað sem mun meðal annars stuðla að aukinni fullnýtingu sjávarauðlinda.  

Myndbandasamkeppnin er einungis einn margra þátta NordMar Biorefine. Meðal annarra þátta eru mat á hagkvæmni og möguleikum lífmassavera fyrir bláa lífhagkerfið á Norðurlöndunum, og myndun tengslanets sérfræðinga á þessu sviði í hinu svokallaða BlueBio Portal.