Mannlíf

Marína Ósk sendir frá sér sína fyrstu plötu - Athvarf
Mánudagur 14. október 2019 kl. 09:42

Marína Ósk sendir frá sér sína fyrstu plötu - Athvarf

Söngkonan Marína Ósk hefur sent frá sér sína fyrstu sólóplötu, Athvarf. Platan inniheldur ellefu lög sem öll eru samin og útsett af söngkonunni sjálfri. Platan var tekin upp í Sundlauginni stúdió í mars 2019 og kemur út á CD og á streymisveitum. Útgáfutónleikar verða í Hofi á Akureyri 25.október og í Sunnusal Iðnó í Reykjavík 30.október.

Heiti plötunnar, Athvarf, vísar til þess að tónlist hefur lengi verið Marínu eins konar griðarstaður þar sem hægt er að hvíla sig, safna kröftum og leita lausna. “Þegar ég var táningur átti ég það til að loka mig af inni í herbergi, leggjast niður og einfaldlega hlusta á tónlist. “Unplugged” útgáfur og viðkvæm, akústísk tónlist voru mitt lífsmeðal og gítarinn oftast í forgrunni, en þessi tegund hljóðheims hefur alltaf haft mjög róandi og heilandi áhrif á mig. Mig langaði mikið að semja tónlist innan þessa áhrifaríka hljóðheims og úr varð þessi plata sem mestmegnis er leikin af tveimur gítarleikurum og rafbassaleikara.”

Marína ólst upp í heimi klassískrar tónlistar í Keflavík, hreiðraði um sig á poppsenu Akureyrar í dágóðan tíma og hefur síðustu 7 ár einbeitt sér að jazznámi í Hollandi og í Svíþjóð. Tónlistin á plötunni er aftur á móti í berskjölduðum söngvaskáldastílog gítarinn fær mikið pláss. Áhrifa jazz og folk tónlistar má þó vel greina í tónsmíðunum og má kannski með sanni segja að þessi leitandi vegferð milli landa, landshluta og tónlistarstíla hafi leitt Marínu í listrænan hring.


Platan á Spotify

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024