Mannlíf

Ljósmyndasýning Víkurfrétta 1983–1993 opnar í Bíósal Duus
Sýnishorn af myndum sem eru á sýningunni eru með fréttinni.
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
fimmtudaginn 2. september 2021 kl. 14:57

Ljósmyndasýning Víkurfrétta 1983–1993 opnar í Bíósal Duus

Víkurfréttir efna til ljósmyndasýningar í Bíósal Duus Safnahúsa þar sem fólkið á Suðurnesjum er í sviðsljósinu. Sýningin opnar fimmtudaginn 2. september en á henni eru tæpleg 80 prentaðar ljósmyndir auk þess sem nærri 300 myndir verða sýndar á skjám. Þá eru sýndar nokkrar forsíður Víkurfrétta frá þessum áratug, 1983 til 1993.

Víkurfréttir komu fyrst út 14. ágúst 1980 og voru fyrsta „fríblað“ landsins en fyrr á því ári lagði forveri þess, Suðurnesjatíðindi, upp laupana en það var selt í lausasölu og áskrift.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Við höfum verið með sýningu í bígerð síðustu tvö árin en heimsfaraldur hefur truflað þá vinnu. Það var samt ákveðið að efna núna til örsýningar á ljósmyndum úr safni Víkurfrétta frá árunum 1983 til 1993, fyrsta áratug núverandi eigenda blaðsins. Þetta er auðvitað bara lítið brot af ljósmyndum Víkurfrétta í fjörutíu ár og á þessum myndum sýnum við eingöngu fólkið sem við mynduðum á hinum ýmsu stöðum og viðburðum. Við ákváðum að byrja þannig. Það er mikið til af myndum af fréttaviðburðum og við eigum það inni fyrir næstu sýningu sem við stefnum að því að verði mun stærri. Þar stefnum við líka að því að gera Suðurnesjamagasíni og sjónvarpsvinnu okkar skil. Það er ansi margt sem við getum sýnt eftir fjóra áratugi í fjölmiðlun á Suðurnesjum,“ segir Páll Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta.