Íþróttir

Samúel Kári verður liðsfélagi Elíasar
Fimmtudagur 16. júní 2016 kl. 22:57

Samúel Kári verður liðsfélagi Elíasar

Semur við Valerenga í Noregi

Keflvíkingurinn Samúel Kári Friðjónsson hefur gert þriggja og hálfs árs samning við norska úrvalsdeildarliðið Valerenga. Fótbolti.net greinir frá.

Samúel verður því liðsfélagi vinar síns úr Keflavík, Elíasar Más Ómarssonar sem leikið hefur eitt tímabil með norska liðinu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Samúel Kári hefur verið á mála hjá enska liðinu Reading frá árinu 2013 þar sem hann lék með varaliðinu og unglingaliðum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá Keflvíkingana Elías og Samúel á sínum yngri árum.

Hér að neðan má sjá viðtal við Samúel eftir að hann skrifaði undir samninginn í dag.