1. maí 2024
1. maí 2024

Íþróttir

Pílufélag Grindavíkur Íslandsmeistari félagsliða
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
fimmtudaginn 2. desember 2021 kl. 10:05

Pílufélag Grindavíkur Íslandsmeistari félagsliða

Fyrsti Íslandsmeistaratitill félagsliða fer í mekka pílunnar á Íslandi, Grindavík.

Pílufélag Grindavíkur, PG, varð fyrst félaga til að tryggja sér Íslandsmeistatitil félagsliða í pílukasti í fyrrakvöld þegar liðið lagði Pílukastfélag Reykjavíkur, PFR, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Keppt var í bæði tvímenningi og einmenningi. Sigra þarf tvo af þrem leggjum í tvímenningi til að tryggja liðinu eitt stig og svo þurfti að sigra níu af sautján leggjum í einmenningi þar sem tvö stig voru í boði.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Grindvíkingar unnu fyrstu viðureignina í tvímenningi örugglega 2:0, en PFR jafnaði metin með 2:1 sigri í annarri viðureigninni.

Mikið jafnræði var með liðunum í fyrstu viðureignum einmenningskeppninnar og að fjórum þeirra loknum höfðu liðin unnið tvo hvor. Þá tóku Grindvíkingar við sér og unnu þrjá af næstu fjórum viðureignum og komust í 5:3.

PFR minnkaði muninn í 5:4, en Grindvíkingar unnu næstu fjórar viðureignir og tryggðu sér 9:4 sigur í einmenningskeppninni, og þar með 3:1 sigur í heildaviðureign kvöldsins.

Það var Hörður Þór Gunnarsson sem tryggði Grindvíkingum sigurinn með því að taka út 111.

„Bara mjög góð tilfinning,“ sagði Hörður Þór í samtali við Stöð 2 sport eftir að Íslandsmeistaratitillinn var í höfn. „Maður dettur í þetta zone og þetta tókst. Bikarinn er kominn heim. Mekka pílunnar, Grindavík.“

Tengdar fréttir