Fréttir

Sigurður Garðarsson í starf forstjóra Hrafnistu
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 12. maí 2020 kl. 14:01

Sigurður Garðarsson í starf forstjóra Hrafnistu

Sjómannadagsráð hefur falið Sigurði Garðarssyni, framkvæmdastjóra Sjómannadagsráðs og Naustavarar, og Maríu Fjólu Harðardóttur framkvæmdastjóra heilbrigðissviðs Hrafnistu, að taka tímabundið við starfi forstjóra Hrafnistu og munu þau leiða áframhaldandi starfsemi, þróun og uppbyggingu Hrafnistuheimilanna sem eru alls átta að tölu á suðvesturhorni landsins. Pétur Magnússon hefur óskað eftir að láta af störfum sem forstjóri Hrafnistu eftir tólf ára farsæl störf fyrir Sjómannadagsráð höfuðborgarsvæðisins við daglega stjórn og mikla uppbyggingu og umbætur í starfsemi Hrafnistu sem leiðandi fyrirtækis á sviði öldrunarþjónustu hér á landi. 

Stjórn Sjómannadagsráðs er afar þakklát Pétri fyrir framlag hans í þágu félagsins og fyrir þann árangur sem hann hefur náð í starfi sem bætt hafa gæði öldrunarþjónustu í landinu og óskar ráðið honum alls velfarnaðar á nýjum vettvangi. Jafnframt er stjórn ráðsins þess fullviss að undir stjórn Sigurðar Garðarssonar og Maríu Fjólu Harðardóttur í starfi forstjóra verði engir hnökrar á daglegri og mikilvægri starfsemi Hrafnistu og því skipulagi sem þróað hefur verið til að hámarka gæði þjónustunnar í þágu íbúa Hrafnistu og þeirra fjölmörgu sem sækja þangað daglega þjónustu, segir í frétt frá Hrafnistu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Sigurður Garðarsson er Keflvíkingur og starfaði lengi hjá Keflavíkurverktökum á Keflavíkurflugvelli og sem ráðgjafi m.a. hjá Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hann hefur verið ötull félagsmálamaður á Suðurnesjum, var um tíma formaður Golfklúbbs Suðurnesja og er nú formaður Knattspyrnudeildar Keflavíkur.

Sjómannadagsráð höfuðborgarsvæðisins

Sjómannadagsráð höfuðborgarsvæðisins er móðurfélag Hrafnistu, Naustavarar og Happdrættis DAS. Á vegum félagsins eru rekin átta hjúkrunarheimili Hrafnistu í fimm sveitarfélögum á suðvesturhorni landsins. Hrafnista er stærsta einstaka öldrunareining landsins, með um fjórðung hjúkrunarrýma á landsvísu þar sem íbúar eru um 800 auk þess sem um tvö hundruð einstaklingar sækja þangað þjónustu í dagdvöl. Þessum stóra og góða hópi þjónustar vel á annað þúsund breiður hópur starfsmanna Hrafnistu með einum eða öðrum hætti árið um kring. Auk íbúa og dagdvalarþega Hrafnistu rekur Naustavör um 250 leiguíbúðir í Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi.