Fréttir

Sérstakar húsnæðisbætur verði hækkaðar
Sunnudagur 5. mars 2023 kl. 07:05

Sérstakar húsnæðisbætur verði hækkaðar

Lagt er til að sérstakar húsnæðisbætur Reykjanesbæjar taki mið af hækkun almennra húsnæðisbóta frá 1. janúar síðastliðnum en þá hækkuðu almennar húsnæðisbætur um 13,8%. Sérstakar húsnæðisbætur hækkuðu til samræmis við hækkun almennra húsnæðisbóta 2022 um 10% til að tryggja að hækkunin skili sér til húsnæðisleigjenda. Sérstakur húsnæðisstuðningur var til umfjöllunar á síðasta fundi velferðarráðs Reykjanesbæjar.

Viðmiðunarmörk sérstaks húsnæðisstuðnings yrðu þá 751 kr. á hverjar 1.000 kr. í greidda húsaleigu frá 1. janúar 2023 og hámark almenns og sérstaks húsnæðisstuðnings samanlagt yrði 75.108 kr.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Velferðarráð mælir með að tillagan verði samþykkt og vísar málinu til bæjarráðs. Lögð er áhersla á mikilvægi hækkunar sérstaks húsnæðisstuðnings til að draga úr áhrifum verðbólgu á lífskjör viðkvæmustu hópa samfélagsins, hún er til þess fallin að styðja við tekjulægstu hópa leigjenda.