Karlakórinn
Karlakórinn

Fréttir

  • Reykjanes í neðsta sæti í viðhorfskönnun til landshluta
    Reykjanesviti og svæðið í kringum hann er vinsæll áfangastaður hjá ferðamönnum.
  • Reykjanes í neðsta sæti í viðhorfskönnun til landshluta
    Kristján Hjálmarsson.
Föstudagur 18. desember 2015 kl. 06:00

Reykjanes í neðsta sæti í viðhorfskönnun til landshluta

Mikil tækifæri og ekkert til fyrirstöðu að laga stöðuna segja markaðssérfræðingar

Reykjanesið er með skaddaða ímynd í samanburði við önnur landssvæði á Íslandi. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun sem H:N Markaðssamskipti lét gera fyrir Atvinnuþróunarfélagið Hekluna. Rúmlega sex af hverjum tíu er þó jákvæðir til svæðisins en þegar viðhorf er borið saman við aðra landshluta er Reykjanesið neðst. Kristján Hjálmarsson hjá H:N segir þó að mikil tækifæri séu fyrir hendi og ekkert til fyrirstöðu að laga þessa stöðu.

„Samkvæmt viðhorfskönnun sem við hjá H:N Markaðssamskiptum og Heklunni – atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja réðumst í kemur í ljós að 64% landsmanna eru jákvæðir í garð Reykjaness. Við fyrstu sýn virðast þetta ágætar tölur en það er því miður svo að viðhorfið til Reykjanessins er neikvæðara en gengur og gerist. Næsta landsvæði fyrir ofan er höfuðborgarsvæðið þar sem um 80% landsmanna eru jákvæðir í garð þess. Norðurlandið trónir hins vegar á toppnum með um 87% - önnur landsvæði eru þar á milli. Það munar sem sagt 16 prósentustigum á Reykjanesi og næsta landshluta fyrir ofan og 23 prósentustigum á Reykjanesi og landsvæðinu í efsta sæti.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hverjir eru stærstu þættirnir í neikvæðri umræðu og skoðun fólks á Reykjanesinu?

„Þegar við rýnum nánar í könnunina kemur í ljós að af þeim sem voru neikvæðir í garð Reykjanessins telur um þriðjungur að svæðið sé óaðlaðandi, tæpur þriðjungur segir að „svæðið“ sé illa rekið bæjarfélag eða að þar þrífist spilling, um fimmtungur nefnir atvinnumál og atvinnuleysi, einhverjir félagsleg vandamál, leiðinlegt veður og svo neikvæðan fréttaflutning.“

Hvað er til ráða?

„Til að snúa þessari þróun við þarf að leiðrétta ímyndarhallann sem Reykjanesið glímir við. Það þarf að bæta ímynd svæðisins bæði út á við sem inná við því svona viðhorf  hefur að sjálfsögðu áhrif á sjálfsmynd fólks hér á Suðurnesjum.

Það virðist líka vera þannig að Íslendingar hafi gert sér upp skoðanir án þess að þekkja til svæðisins eða vita nokkuð um það. Margt af því sem fólk heldur um svæðið á alls ekki við rök að styðjast. Við getum nefnt nokkur dæmi. Ólíkt því sem margir halda þá eru Suðurnesin eitt fallegasta svæði landsins með ótrúlegri náttúru og mikilli sögu. Það tekur ekki langan tíma fyrir þann sem ferðast um svæðið að átta sig á því.

Ef við tökum atvinnumál sem dæmi þá virðast Íslendingar halda að á Reykjanesi ríki algjört ófremdarástand og atvinnuleysi hér sé meira en gengur og gerist á landinu. Hið rétta er hins vegar að atvinnuleysið er nánast ekki neitt og hér vantar fólk til starfa. Vissulega hefur atvinnuástand á Suðurnesjum oft verið erfitt, var til dæmis í kringum 15% fyrir örfáum árum, en staðan nú er bara allt allt önnur.

Sömu sögu er að segja af atvinnutekjum. Samkvæmt skýrslu sem fjárfestingarfélagið Gamma vann fyrir HS Orku og Bláa lónið um Auðlindagarðinn fyrir skömmu kemur í ljós að á árunum 2012 og 2013 voru meðalatvinnutekjur fólks á Reykjanesi hærri en á landinu öllu. Þetta eru skýr dæmi um misskilninginn sem ríkir. Ætli það megi ekki færa rök fyrir því að þetta sé í raun og veru gömul og úrelt ímynd af svæðinu sem er að einhverju leyti greipt í huga fólks en á einfaldlega ekki lengur við rök að styðjast.

Til að breyta þessu viðhorfi þarf að upplýsa fólk, bæði hér á Suðurnesjum sem og annarsstaðar, um hversu frábært svæðið er. Hér hefur gríðarleg uppbygging átt sér stað, þetta er fyrsta stopp yfir 90% ferðamanna sem koma hingað til lands, hér býr duglegt og kraftmikið fólk á einu fallegasta svæði landsins í fjölskylduvænu umhverfi þar sem góðar sögur leynast bak við hvern stein. Það er ekkert því til fyrirstöðu að Reykjanesið fái þá athygli og viðurkenningu sem svæðið á skilið. Tækifærin eru svo sannarlega til staðar.“