Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Nýjar reglur um stöðuleyfi lausafjármuna í Suðurnesjabæ
Ekki þarf að sækja um stöðuleyfi fyrir gáma á skipulögðum gámasvæðum, bátum á hafnarsvæði, þar sem gert er ráð fyrir geymslu þeirra, hjólhýsum á hjólhýsasvæðum eða torgsöluhúsum á svæðum fyrir slík hús.
Miðvikudagur 21. júlí 2021 kl. 10:01

Nýjar reglur um stöðuleyfi lausafjármuna í Suðurnesjabæ

Nýjar reglur um stöðuleyfi lausafjármuna í Suðurnesjabæ hafa tekið gildi en bæjarráð Suðurnesjabæjar samþykkti þær á fundi sínum þann 14. júlí.

Í tilkynningu á vef Suðurnesjabæjar er bent á að sækja þurfi um stöðuleyfi til byggingafulltrúa ef lausafjármunir standa lengur en tvo mánuði utan þeirra svæða sem eru sérstaklega skipulögð og ætluð til geymslu slíkra lausafjármuna.

Public deli
Public deli

Suðurnesjabær hvetur þá sem ekki hafa nú þegar gilt stöðuleyfi fyrir lausafjármuni í umsjá sinni, að sækja um innan þriggja mánaða frá gildistöku reglanna.