Fréttir

Níu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Laugardagur 10. apríl 2021 kl. 15:39

Níu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Níu frambjóðendur taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem fram fer laugardaginn 29. maí nk.

Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi kom saman nú fyrir hádegið og fór yfir framboð sem bárust áður en framboðsfrestur rann út. Voru þau öll úrskurðuð gild. Um er að ræða 3 konur og 6 karla. Meðalaldur frambjóðenda er 47 ár. Í prófkjörinu velja þeir sem taka þátt 5 frambjóðendur hver.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Frambjóðendur eru:

Ásmundur Friðriksson, alþingismaður, Reykjanesbæ

Björgvin Jóhannesson, fjármálastjóri, Sveitarfélaginu Árborg

Eva Björk Harðardóttir, oddviti Skaftárhrepps, Skaftárhreppi

Guðbergur Reynisson, framkvæmdastjóri, Reykjanesbæ

Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri, Hveragerði

Ingveldur Anna Sigurðardóttir, laganemi, Rangárþingi eystra

Jarl Sigurgeirsson, skólastjóri, Vestmannaeyjum

Margeir Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri

Vilhjálmur Árnason, alþingismaður, Grindavík