Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Leikskólinn fylltist af snjó í óveðri
Stórvirk vinnuvél grefur upp leikskólabygginguna eftir að veðrinu slotaði. Að neðan má sjá smágröfu að störfum inni í leikskólabyggingunni. Myndir/Svanur Kristjánsson
Föstudagur 17. mars 2023 kl. 06:40

Leikskólinn fylltist af snjó í óveðri

  • Smiðir í Suðurnesjabæ hafa fengið að kenna á snjóþungum vetri

  • Framkvæmdir stöðvuðust í tíu daga á meðan snjó var mokað úr nýbyggingunni

  • Með verri vetrum sem Bragi Guðmundsson hefur upplifað í smíðavinnunni

Almannavarnarástand skapaðist í Suðurnesjabæ í snjóþyngslum í desember. Suðurnesjabær var einangraður í fjóra sólarhringa. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítarlegri samantekt sem Almannavarnir Suðurnesja utan Grindavíkur hafa unnið. Ein af birtingamyndum snjóþyngslana í Suðurnesjabæ eru aðstæður sem sköpuðust við leikskóla sem er í byggingu við Byggðaveg í Sandgerði. „Leikskólinn fylltist af snjó,“ segir Bragi Guðmundsson, húsasmíðameistari, sem byggir leikskólann.

„Það eru stórir gluggar að norðan- og austanverðu og við settum mótaflekana aftur fyrir þá til að verjast áhlaupinu. Þá kom bara snjórinn af heiðinni og fyllti að húsinu. Það myndaðist fimm metra hár skafl og snjórinn fór yfir þakið og sogaðist inn í húsið að framanverðu. Það fylltist það mikið að snjórinn náði upp undir loftaplötu.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Smiðirnir tóku sér skóflu í hönd og þurftu að handmoka fjölmörg rými í skólabyggingunni. Þá var smágrafa sótt austur í sveitir og hún notuð til að moka snjó út úr húsinu.

„Við vorum í viku eða tíu daga að hreinsa út úr skólanum og framkvæmdin var stopp í tíu daga út af veðri og vegna þess að þurfti að moka út.“

Aðspurður segir Bragi kostnaðinn hlaupa á milljónum króna. Hann hafi þó ekki lagt í þá vinnu að reikna það sérstaklega út. Mannskapurinn hafi verið í snjómokstri í marga daga og smíðavinnan stopp.

„Þegar gluggarnir í húsið komu þá þurfti að fá öfluga beltagröfu til að moka frá húsinu svo hægt væri að setja gluggana í. „Þetta var alveg ótrúlegt,“ segir Bragi og bætir við: „Þetta er með verri vetrum sem ég hef upplifað í smíðavinnunni.“

Nágranni leikskólans er tjaldsvæðið í Sandgerði og þar eru rekin gistihús allt árið. Loka þurfti gistihúsunum því við þau fylltist allt af snjó og hafðist ekki undan að moka gestina út.

Nánar er fjallað um óveður og ófærð á síðu 7 í Víkurfréttum í dag og greint frá fundi almannavarna um ástandið sem skapaðist.