ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Fréttir

Jón Steinar: „Vilja yfirvöld ekki hafa okkur í Grindavík?“
Fimmtudagur 19. febrúar 2026 kl. 10:03

Jón Steinar: „Vilja yfirvöld ekki hafa okkur í Grindavík?“

Í pistli sem Jón Steinar Sæmundsson skrifar veltir hann því upp hvort stjórnvöld vilji í reynd ekki hafa Grindvíkinga í bænum, þar sem svör og lausnir um endurkaup eigna og endurreisn dragist sífellt á langinn. Hann segir upplýsingagjöf til íbúa hafa verið ábótavant og telur málaflokkinn kominn á hendur of margra aðila, sem geri ferlið flókið og hægfara.

Jón Steinar bendir á að „huldufélagið“ Þórkatla hafi á síðasta ári gefið út að skýringar og útfærslur um endurkaup eigna kæmu fram í byrjun árs. Þær hafi þó ekki borist enn og nú sé talað um að þær geti komið í lok mars.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Þangað til sé íbúum heimilt að hafa samband og kaupa eignir sínar aftur á sömu forsendum og þær voru seldar, eða á 95% af brunabótamatsverði samkvæmt lögum. Jón Steinar segir þó augljóst að fáir, ef nokkrir, fari þá leið, þar sem hús í bænum hafi staðið umhirðulaus í að verða tvö ár og bæði hús og lóðir drabbast niður. „Einhver gulrót þarf að vera í því að fá fólk til að snúa aftur, skrifar hann og bendir á að íbúar standi frammi fyrir kostnaði sem þegar hafi fallið til og muni aukast við endurkomu.

Hann gagnrýnir jafnframt að upplýsingagjöf til íbúa einkennist af „upplýsingaóreiðu“ og spyr hvort of margir aðilar, einkum utanaðkomandi, komi að málunum. Hann nefnir sérstaklega að hættumat hafi verið gert að flóknu og óskýru atriði sem almenningur eigi erfitt með að skilja.

Að hans mati virðist sem yfirvöld reyni að halda íbúum „úti“ meðan atburðarásin gangi yfir, án þess að banna þeim það beint, en með því að tefja. Hann segir öryggis-, húsnæðis- og skólamál vera á höndum of margra, sem flæki verkefnin og hægi á nauðsynlegri samhæfingu.

„Allt sem ríkið snertir“ í endurreisninni gangi að hans mati „á hraða snigilsins“. Hann veltir því einnig upp hvort þeir sem komi að málunum hafi hag af því að viðhalda kerfinu og stöðunni eins og hún er.

Í lok pistilsins segir Jón Steinar Grindvíkinga sjálfa hafa byggt upp blómlegan bæ og spyr hvort íbúum sé ekki treystandi til að koma meira að endurbyggingunni. Hann telur að þeir sem hafi raunverulegan hag af málunum ættu að fá meira vægi í ákvarðanatöku.

Pistil Jóns Steinars Sæmundssonar má lesa hér: