Hvernig fylgja opinber fjárframlög uppgangi á Suðurnesjum?
	Reykjanesbær hefur látið vinna úttekt á fjárveitingum ríkisins til helstu stofnana á Suðurnesjum og hvernig þær hafa fylgt þeim mikla uppgangi sem verið hefur á svæðinu. Árleg fjölgun íbúa hefur verið langt umfram aðra landshluta sl. 3 ár. Úttektin verður kynnt á opnum fundi í Bíósal DUUS húsa í Reykjanesbæ næstkomandi fimmtudag, 19. október, klukkan 17:30. 
	Úttektin tekur til fjárveitinga til mikilvægra verkefna á Suðurnesjum sem reiða sig á fjármögnun frá ríkinu. Sérstaklega er farið yfir hvernig opinber fjárframlög hafa fylgt þeim mikla uppgangi sem verið hefur á svæðinu. Til að setja opinberar fjárveitingar í samhengi eru þær einnig bornar saman við sambærileg verkefni á öðrum svæðum á landinu. Þá eru framtíðarhorfur metnar með tilliti til þeirra verkefna sem framundan eru á Suðurnesjum. 
	Úttektin er unnin af ráðgjafarfyrirtækinu Aton og mun Dr. Huginn Freyr Þorsteinsson fara yfir helstu niðurstöður hennar á fundinum.  
	Að lokinni kynningu verður opnað fyrir fyrirspurnir og umræður sem Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar mun stjórna. Reykjanesbær hefur boðið fulltrúum þeirra stofnana, sem fjallað er um í úttektinni, á fundinn auk þingmanna og frambjóðenda kjördæmisins svo að hægt sé að hefja umræðu um niðurstöður úttektarinnar þegar í stað. 
	Allir eru velkomnir á fundinn. Gert er ráð fyrir að fundurinn standi yfir í 1,5 klst. og ljúki klukkan 19:00. 
				
	
				

 
	
				


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				