Glænýjar Víkurfréttir — rafrænar og á pappír
Víkurfréttir eru komnar út. Rafrænt blað er komið á vefinn og prentuðum blöðum verður dreift í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Voga á miðvikudagsmorgun.
Grindvíkingar sem vilja nálgast prentað eintak geta sótt það á einn af okkar fjölmörgu dreifingarstöðum. T.a.m. má nálgast blaðið í öllum verslunum Samkaupa, þ.e. Nettó, Krambúðinni og Kjörbúðinni. 
Þá er Víkurfréttum dreift í Salalaug í Kópavogi og í Nettó í Mjódd og á Granda. Blöðin verða komin þangað síðdegis á miðvikudegi.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				