Bólusetning flugliða - „Mun auka áhuga og traust fólks á því að ferðast til Íslands“
„Stjórnvöld verða að bregðast hratt og örugglega við þessari eðlilegu kröfu um bólusetningu flugliða. Flugliðar eru undanþegnir ýmsum sóttvarnarráðstöfum af þeim sökum. Þá mun það eflaust auka áhuga og traust fólks á því að ferðast til Íslands viti það af bólusettum flugliðum og flugvallastarfsmönnum,“ segir Vilhjálmur Árnson, þingmaður í Suðurkjördæmi en Morgunblaðið greindi frá því að ekki hafi fengist heimildir fyrir því að bólusetja flugliða og annað starfsfólk flugfélaga sem á í samskiptum við flugfarþega og fólk erlendis, starfa sinna vegna. Vilhjálmur segir að þetta geti haft veruleg áhrif á ferðaþjónustuna og umsvif í flugstöðinni og þar af leiðandi atvinnustigið á Suðurnesjum. Þannig geti þetta haft veruleg áhrif í endurheimtun starfa sem hafa legið niðri vegna ástandsins.
Icelandair hefur fengið synjun hjá embætti landlæknis og heilbrigðisráðuneytinu við ósk um bólusetningu framlínustarfsfólks síns. Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Icelandair segir við mbl.is að starfsfólk sem vinnur við að halda samgöngum við landið uppi og fari út fyrir landamærin sé lengur í snertingu við farþega en margir aðrir.
Hann áætlar að um sé að ræða eitthvað á þriðja hundrað manns. Fulltrúar stjórnvalda hafa sagt að flugliðar væru ekki í forgangshópi, samkvæmt reglugerð ráðuneytisins.