Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Bláa Lónið gefur tóninn fyrir sumarið - 112 nýir starfsmenn og fjölgar á næstunni
Fimmtudagur 27. maí 2021 kl. 10:12

Bláa Lónið gefur tóninn fyrir sumarið - 112 nýir starfsmenn og fjölgar á næstunni

Frá og með föstudeginum 28. maí, mun Bláa Lónið opna aftur öll upplifunarsvæði sín en starfsemi félagsins hefur að mestu legið niðri frá 8. október í fyrra vegna Covid-19. Opið verður alla daga vikunnar.

Bláa Lónið hefur þegar ráðið til sín 112 nýja starfsmenn á undanförnum vikum og gerir ráð fyrir að fjölga þeim enn frekar á komandi vikum og mánuðum.

Public deli
Public deli

Til upplifunarsvæða Bláa Lónsins í Svartsengi teljast Bláa Lónið og Retreat Spa, fjórir veitingastaðir, tvö úrvalshótel, rannsóknar- og þróunarsetur auk verslunar.

Samhliða opnuninni kynnir félagið nú Sumarkort Bláa Lónsins sem veitir einstaklingum og fjölskyldum aðgang og tækifæri til að njóta, reglulega, alls þess sem Bláa Lónið hefur upp á að bjóða. Kortið veitir ótakmarkaðan aðgang að Bláa Lóninu í allt sumar og gildir út september nk.

„Við hjá Bláa Lóninu horfum björtum augum fram á við og fögnum íslensku ferðasumri á sama tíma og ferðaþjónustan er almennt að taka við sér. Eftir fordæmalausan vetur er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að huga að líkama og sál og hafa það reglulega notalegt í allt sumar. Með Sumarkorti Bláa Lónsins erum við að leggja okkar að mörkum til að svo megi verða.“ segir Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa Lónsins

Allar nánari upplýsingar um Sumarkort Bláa Lónsins er að finna á blaalonid.is.