Fréttir

Björgvin Arnar látinn
Þriðjudagur 27. ágúst 2013 kl. 17:43

Björgvin Arnar látinn

Björgvin Arnar Atlason, sex ára drengur sem barðist við illvíga sjúkdóma frá fæðingu, lést í gær á sjúkrahúsi. Vísir.is greinir frá.

Björgvin fæddist með afar sjaldgæfan genagalla,  Geleophysic dysplasia, og glímdi við mikil veikindi strax frá fæðingu. Hann fór meðal annars í þrjár hjartaaðgerðir, fimm hjartaþræðingar auk þess sem fjarlægja þurfti annað lungað vegna sýkingar. Björgvin þurfti einnig að fá sonduhnapp í magann vegna næringarleysis fyrir ári og þurfti á súrefni að halda allan sólarhringinn.

Aðstandendur fjölskylduskemmtunar sem halda átti í íþróttahúsinu að Sunnubraut í Keflavík á sunnudaginn til styrktar móður Björgvins, Ásdísar Gottskálksdóttur, ætla að halda sínu striki og halda skemmtunina þrátt fyrir andlát Björgvins. Þar koma fram ýmsir þekktir listamenn á borð við Sveppa, Björgvin Halldórsson, Eirík Fjalar, Valdimar, Ingó Veðurguð og Jón Jónsson.

Nánari upplýsingar um fjölskylduskemmtunina má finna hér.



 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024