Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Fréttir

170 milljónir úr byggðaáætlun – tvö verkefni tengd Suðurnesjum hlutu styrki
Miðvikudagur 18. febrúar 2026 kl. 14:38

170 milljónir úr byggðaáætlun – tvö verkefni tengd Suðurnesjum hlutu styrki

Tvö verkefni sem tengjast Suðurnesjum hlutu styrki þegar Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra úthlutaði 170 milljónum króna til 14 verkefna um land allt úr byggðaáætlun. Annars vegar fékk Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) styrk til verkefnis sem snýr að endurreisn og uppbyggingu í Grindavík í kjölfar hamfara og hins vegar fékk samstarfsverkefni Markaðsstofu Reykjaness og Markaðsstofu Suðurlands, í gegnum umsókn SASS, styrk til markaðssetningar og miðlunar á Eldfjallaleiðinni.

Styrkirnir koma af byggðaáætlun (aðgerð C.1 – Sértæk verkefni sóknaráætlanasvæða) en alls bárust 28 umsóknir um samtals 756 milljónir króna. Þetta er hæsta úthlutun úr þessari aðgerð á tímabili gildandi byggðaáætlunar. Þriggja manna valnefnd fór yfir umsóknir og lagði tillögur fyrir ráðherra. Markmiðið er að tengja sóknaráætlanir landshluta við byggðaáætlun og færa heimafólki aukna ábyrgð á ráðstöfun fjármuna, þar sem verkefni með varanleg áhrif, atvinnuskapandi nálgun og nýsköpun eru í forgangi.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Tvö verkefni tengd Suðurnesjum

Grindavík – saman í sókn
  • Styrkþegi: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS)

  • Styrkupphæð: 16,5 milljónir kr.

Verkefnið miðar að því að skapa samfellu í uppbyggingu samfélags og atvinnulífs í Grindavík í kjölfar hamfara. Með samstarfi, þjálfun, markaðssetningu og virkni samfélagsins er stefnt að því að stuðla að sjálfbærri endurreisn, auka seiglu og móta framtíðarsýn. Verkefnið byggir á reynslu og árangri fyrri áfanga og miðar að því að styrkja samstöðu, auka þátttöku og efla jákvæða ímynd bæjarins.

Eldfjallaleiðin – markaðssetning og miðlun
  • Styrkþegi: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS)

  • Styrkupphæð: 4,5 milljónir kr.

Eldfjallaleiðin er samstarfsverkefni Markaðsstofu Reykjaness og Markaðsstofu Suðurlands sem miðar að því að miðla þekkingu um eldvirkni og áhrif hennar á náttúru og samfélög og skapa virðisaukandi tækifæri í ferðaþjónustu. Ferðaleiðin var þróuð af íbúum og ferðaþjónustuaðilum. Styrkurinn verður nýttur til að fjármagna markaðssetningu, samræmda framsetningu og þróun verkfæra sem styðja ferðaþjónustuaðila, sveitarfélög og gesti með aðlaðandi, jákvæðri og uppbyggilegri miðlun.

Nánar um öll verkefnin á vef Stjórnarráðsins.