Bygg
Bygg

Fréttir

„Kökutúr“ hjá Tómasi Þorvaldssyni GK
Miðvikudagur 15. apríl 2020 kl. 09:59

„Kökutúr“ hjá Tómasi Þorvaldssyni GK

Tómas Þorvaldsson GK kom í þarsíðustu viku heim eftir mettúr en aflaverðmæti hans var 337,6 milljónir króna sem er mesta aflaverðmæti í sögu Útgerðarfélagsins Þorbjarnar hf. í Grindavík úr einni veiðiferð.

Afli veiðiferðarinnar, sem stóð í 34 daga, var 752 tonn upp úr sjó af blönduðum afla. Það gerir 443 tonn af afurðum sem fóru í 19.687 kassa.

Samkvæmt heimildum Víkurfrétta gekk brösuglega fyrstu dagana í túrnum hjá strákunum þar sem þetta var fyrsti túr eftir þriggja vikna stopp vegna vélarupptektar og ýmissa lagfæringa á millidekki. Svona mettúrar ganga oft undir viðurnefninu „kökutúrar“ vegna þess að venjan er að útgerðin komi færandi hendi með köku. En í ljósi aðstæðna varðandi COVID-19 varð ekkert af kökuveislu af þessu tilefni. Skipsstjóri í þessari veiðiferð var Bergþór Gunnlaugsson.

VF-myndir / Jón Steinar Sæmundsson



Bílakjarninn
Bílakjarninn