Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Aðsent

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar: Nýjar námsleiðir frá og með næsta skólaári
Myndir teknar á sameiginlegum æfingabúðum lúðrasveita Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Tónlistarskóla Kópavogs. VF-myndir: JPK
Laugardagur 25. júní 2022 kl. 08:59

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar: Nýjar námsleiðir frá og með næsta skólaári

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar mun frá og með næsta skólaári, 2022–2023, bjóða upp á þrjár nýjar námsleiðir. Annars vegar er það sérstakt lúðrasveitarnám fyrir byrjendur á blásturshljóðfæri og hins vegar tvær nýjar leiðir innan klassískrar söngdeildar.

Lúðrasveitarnám

Lúðrasveitarnámið á blásturshljóðfæri (áður „kynningarnám“) er ætlað börnum sem eru í 3. og 4. bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar og eru að sækja um nám við Tónlistarskólann í fyrsta sinn. Hljóðfærin sem í boði verða eru málmblásturshljóðfæri (trompet, althorn, baritónhorn, básúna, túba) og tréblásturshljóðfæri (þverflauta, klarinett, saxófónn).

Public deli
Public deli

Um er að ræða samfellt nám allt skólaárið en hljóðfæratímar verða styttri en venja er, eða tvisvar 20 mínútur á viku, sem er 60% af hefðbundinni lengd kennslustunda í hljóðfæranámi.

Auk þess að nemendur læri að leika á það blásturshljóðfæri sem þeir velja sér þá er markmiðið að þeir myndi lúðrasveit á haustönninni og kynnist því að vinna í tónlistarhópi og þeirri ábyrgð og tillitssemi sem því fylgir. Þegar að því kemur bætist lúðrasveitaræfing við hljóðfæranámið, einu sinni í viku í 45 mínútur í senn, utan skólatíma.

Söngleikjadeild

Tónlistarskólinn mun bjóða upp á sérstaka deild sem hefur það að markmiði að þjálfa nemendur í leiklist, söng og hreyfingum á söngleikjasviði. Námið hentar öllum sem hafa áhuga á söngleikjum og sviðslistum og er mjög gagnlegt fyrir nemendur sem stefna á að taka þátt í söngleikjum sem m.a. eru settir eru upp í bæjarfélaginu eða nemendur sem hyggjast fara í leiklistarnám eða söngleikjanám hérlendis eða erlendis. Söngleikjadeildin er ætluð nemendum í 9. og 10. bekk grunnskóla og nemendum í framhaldsskóla og eru með lögheimili í Reykjanesbæ.

Deildin er tveggja ára nám. Nemendur fá söngkennslu, einkatíma, einu sinni í viku í 30 mínútur. Síðan er hóptími einu sinni í viku í 60 mínútur þar sem farið verður í sviðsframkomu og  nemendum gefst tækifæri til að syngja saman í smærri eða stærri hóp þau lög sem verið er að vinna með í hvert skipti. Nemendur fá undirleikstíma einu sinni í viku til að æfa lög sem verið er að vinna með. 

Á seinna árinu bætist nótnalestur við í 20 mínútur á viku. Í þeim kennslustundum verður farið í undirstöðuatriði í nótnalestri.

Ef nemendur vilja halda áfram námi eftir að söngleikjadeild lýkur, flytjast þeir sjálfkrafa yfir í almenna söngdeild.

Kórdeild

Um er að ræða sérstaka deild ætlaða einstaklingum, óháð aldri, sem eru í kór eða hafa áhuga á því að vera í kór og vilja auka við söngkunnáttu sína og bæta raddbeitingu. Nemendur þurfa að hafa lögheimili í Reykjanesbæ.

Nemendur kórdeildar fá einkatíma í söng einu sinni í viku í 30 mínútur og kennslu í nótnalestri einu sinni í viku í 20 mínútur en þar verður lögð áhersla á undirstöðuatriði í að lesa hryn og tónferli. Ef nemendur vilja halda áfram námi eftir að kórdeildarnámi lýkur, flytjast þeir sjálfkrafa yfir í almenna söngdeild.

Áhugasamir geta kynnt sér nánar þessar nýju leiðir á vefsíðu Tónlistarskólans tonlistarskoli.reykjanesbaer.is, m.a. hvað varðar umsóknir, hægt er að sækja um hvenær sem er í sumar og fram í ágúst.

Haraldur Árni Haraldsson, skólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.