Aðsent

Sigur í sjónmáli
Föstudagur 24. september 2021 kl. 11:30

Sigur í sjónmáli

Ágæti kjósandi!

Nú er örstutt í kosningar. Ég finn að það er eitthvað stórkostlegt í vændum fyrir þau sem hafa beðið alltof lengi eftir bættum hag.  Sanngirnis- og réttlætisskúta Flokks fólksins siglir seglum þöndum í blússandi meðbyr öfugt við það sem skoðanakannanir bentu til í upphafi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Það bætist hratt við áhöfn hennar sem er frábært því plássið er ótakmarkað.

Við gætum verið á lokametrunum í átt að betra og sanngjarnara samfélagi. Ef Flokkur fólksins fær traust umboð kjósenda þá munu efnaminni, öryrkjar, fatlaðir og eldri borgarar finna á borði,  ekki einungis í orði, umtalsverðar umbætur á  lífskjörum sínum. Réttlætið getur sigrað!

Við viljum kveðja samfélag sem mismunar þjóðfélagsþegnum sínum eftir efnahag og sýnir þeim forkastanlega  lítilsvirðingu með hunsun og tómlæti. Samfélag þar sem stjórnmálamenn missa skyndilega minnið um leið og kosningum lýkur og gleyma öllum sínum fögru loforðum. 

Við í Flokki fólksins skilgreinum okkur hvorki til vinstri né hægri heldur einbeitum okkur að ört stækkandi hópi þeirra  sem líða skort á einn eða annan hátt í okkar forríka samfélagi. Lífsgæði eiga ekki að vera einkaréttur útvalinna!

Af hverju er þessi meðbyr nú með Flokki fólksins?

Við Íslendingar erum að mínu mati að hrökkva upp með andfælum af martröð sem hefur til þessa, gert spilltu ríkisvaldi auðveldara að breikka markvisst bilið á milli ómældrar fátæktar og óhóflegs ríkidæmis. Við höfum fengið nóg og við vitum að við eigum betra skilið, þessi litla en harðduglega þjóð. Það er nóg til handa öllum og okkur ber siðferðisleg skylda til að sjá til þess að allir þegnar óháð efnahag fái sanngjarna sneið af auðlindakökunni. Ekki bara fáir útvaldir!

Okkur sem erum komin yfir miðjan aldur er orðið ljóst að margra  okkar mun ekki bíða áhyggjulaust ævikvöld eftir langa starfsævi – nema gripið sé í taumana. Þau okkar sem fóru illa út úr efnahagshruninu munu enn skulda verðtryggð lán þegar við komumst á eftirlaunaaldur, missum heilsuna eða þurfum að hætta að vinna af öðrum ástæðum. Við kvíðum framtíð okkar, það er óásættanlegt að þurfa að  kvíða framtíð sinni komin yfir miðjan aldur þegar möguleikar til þess að geta unnið fyrir sér minnka með hverju árinu sem líður og hækkandi skuldir vofa yfir okkur sem mara. Þessu vill Flokkur fólksins breyta, við krefjumst réttlætis fyrir alla í ríku landi!

Eldri borgarar þessa lands líða margir hverjir skort vegna langvarandi áhugaleysis og vanvirðingar stjórnvalda í þeirra garð. Þeir eru nú taldir “vandamál” og áhugi verið afar takmarkaður til að leysa þann vanda, enda skilar það auðvaldinu ekki veraldlegum arði, að ekki sé minnst á marglofaðan stöðugleikann sem gæti raskast.

Þess vegna nýtur Flokkur fólksins meðbyrs. Við stöndum saman og erum að brjóta niður múra óréttlætis sem hingað til hafa talist óbrjótanlegir.

Með þínum stuðningi halda okkur engin bönd, við þorum, getum og viljum fyrir þig!

Með kærri kveðju og þökk.

Elín Íris Fanndal

í þriðja sæti Flokks fólksins á Suðurlandi.