Viðskipti

Rafmagns- og fjölorkubílar í Auðlindagarðinum á Reykjanesi
Sigurður Guðjónsson frá Heklu afhenti þeim Hreini Halldórssyni rekstrarstjóri orkuvera og ÞórðiAndréssyni aðstoðarrekstrarstjóra bílana í Heklu á Fitjum í Njarðvík.
Laugardagur 15. ágúst 2015 kl. 07:00

Rafmagns- og fjölorkubílar í Auðlindagarðinum á Reykjanesi

HS Orka keypti nýverið tvo nýja bíla fyrir jarðvarmaverið í Svartsengi af Heklu í Reykjanesbæ. Um er að ræða e-Golf rafmagnsbíl og MMC Outlander PHEV (Plug in Hybrid) tvíorku bíl. Bifreiðum sem knúnar eru innlendri grænni orku er sífellt að fjölga á Íslandi enda rekstur þeirra einstaklega hagkvæmur vegna hagstæðs orkuverðs og mun minni umhverfisáhrifa en af bifreiðum knúnum af innfluttu jarðefnaeldsneyti.

Sú umbreyting sem gæti orðið á bifreiðaflota landsins á næstu árum má líkja við það þegar ráðist var í það stóra verkefni á síðustu öld að hverfa frá því að notast við innflutta orkugjafa til húshitunar yfir í að notast við innlendan umhverfisvænan orkugjafa með nýtingu jarðvarmans til húshitunar með þeim jákvæðu áhrifum sem það hafði á efnahag og ekki síður loftgæði landsins.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024