Viðskipti

  • Opnaði eldsnemma og fyllti búðina af ferðamönnum
  • Opnaði eldsnemma og fyllti búðina af ferðamönnum
Föstudagur 19. desember 2014 kl. 16:00

Opnaði eldsnemma og fyllti búðina af ferðamönnum

- Júlli í Flugukofanum segir Suðurnesjamenn vilja sína veiðibúð

Flugukofinn að Hafnargötu 21 í Keflavík er eina sérverslun Suðurnesja með sportveiðivörur. Júlíus Gunnlaugsson ræður ríkjum í Flugukofanum en hann er sjálfur forfallinn veiðimaður. Hann byrjaði með vísi að verslun í skúrnum heima hjá sér skömmu eftir hrun en opnaði við Hafnargötuna fyrir jólin í fyrra.
Veiðivertíðin stendur meira og minna allt árið. „Í febrúar byrja menn að hnýta flugur fyrir vorið og sumarið. Vorveiðin hefst í apríl og í júlí byrjar laxinn. Sjóbirtingur byrjar svo í september og stendur til 20. október. Svo er ég kominn með vörur fyrir skotveiðar og er að þjónusta rjúpna- og gæsaveiðimenn. Sala á skotveiðibúnaði fer vel af stað en ég er með skot og allt það sem menn þurfa til skotveiða,“ segir Júlíus í samtali við Víkurfréttir.



Jólin eru í júlí og ágúst

Aðspurður hvort það séu toppar í starfsemi Flugukofans, þá segir Júlíus að jólin séu í júlí og ágúst ár hvert í veiðinni. Þá sé mesta fjörið í stangveiðinni, flestir að veiða og í nógu að snúast. Þá er silungur og lax og í enda þess tímabils kemur svo sjóbirtingur. Það eru svo sannarlega líka að koma jól núna í Flugukofanum því Júlíus hefur verið að fylla búðina af gjafavöru ýmiskonar fyrir veiðimenn síðustu daga. Veiðiáhugafólk þarf jú líka að fá í skóinn eða veiðipakka undir jólatréð.

– Og hvað fá veiðimenn í skóinn eða jólapakkann?
„Það er alltaf hefðbundið að gefa hanska og húfur. Á hverju ári kemur svo alltaf eitthvað nýtt tækniundur fyrir veiðimenn. Nú er það WaterWolf sem er myndavél í anda GoPro nema að þessari er kastað með línunni og hún myndar þegar fiskurinn tekur. Þessi vél er flott jólagjöf, sem og veiðitöskur eða nýtt veiðihjól. Vöðlur og skór eru einnig vinsælar jólagjafir fyrir veiðimenn, sem og hnýtingasett“. Júlíus er með eitt mesta úrval landsins þegar kemur að fluguhnýtingavörum og segist vilja vera sterkur á því sviði.



Meðbyr með búðinni


Júlíus segist hafa aukið vöruúrvalið umtalsvert frá síðustu jólum og að hann finni fyrir meðbyr með búðinni. „Fólk verslar við mig því það vill hafa mig og mér þykir það mjög dýrmætt. Það segir mér líka að halda ótrauður áfram.“

Hann segist oft fá viðskiptavini inn í búðina til sín sem hafi verið að skoða veiðivörur í verslunum í Reykjavík en fá Júlíus svo til að panta vöruna fyrir sig til afgreiðslu í Keflavík. Hann segist einnig sáttur við að allar þessar flottu veiðibúðir í Reykjavík hafa á þessu mikinn skilning og eru allar að þjónusta hann með þá vöru sem óskað er eftir. „Svo erum við með tvær ferðir með flutningabílum frá Reykjavík á hverjum degi, þannig að afgreiðum við vörurnar samdægurs“.

Júlíus segist einnig oft geta boðið vöruna ódýrari en í Reykjavík. Það ræðst af því að hann er lítill með enga yfirbyggingu og getur þannig haft haft álagninguna lægri. „Þá er ég með þjónustustigið alla leið og þannig vil ég byggja þetta upp, að menn fái góða þjónustu og gott verð“.



Margir færir veiðimenn

Á Suðurnesjum eru gríðarlega margir í skotveiði og stangveiði og margir færir veiðimenn. Júlíus segir þetta kröfuharðan hóp. „Menn sjá einhverjar nýjar flugur á netinu og koma samdægurs til mín til að athuga hvort þær séu til eða hvort ég geti hnýtt þær.

Flugukofinn býður öll helstu og bestu merkin í veiðivörum og Júlíus segir að veiðimenn þurfi alltaf að vera að endurnýja veiðibúnaðinn. „Mönnum finnst a.m.k. að þeir þurfi að endurnýja reglulega,“ segir Júlíus og brosir. „Menn koma til að fá sér nýjar flugulínur og þær kosta sitt. Svo ákveða þeir bara að fá sér nýtt hjól líka. Og flugur og tauma, eitthvað sem menn nota mikið“.

Vönduð merki í veiðistöngum eins og hinar amerísku Sage og Scott eru bæði til sölu í Flugukofanum. Shimano kaststangir fást hjá Júlíusi og RIO flugulínan er sögð sú besta og fæst einnig í búðinni. Júlíus leggur áherslu á að vera með breidd í vöruúrvali og verð sem flestir ættu að ráða við. „Ég er samt ekkert hrifinn af því að fylla allt hér af einhverju Kínadrasli“.



Opnað snemma á sumrin

Síðasta sumar var Júlíus duglegur að opna verslunina mjög snemma á morgnana og það skilaði þeim árangri að margir útlendingar komu inn í búðina til að versla. Hann segist hafa veitt því athygli að erlendir ferðamenn væru komnir á göngu um Hafnargötuna á milli 7 og 9 á morgnana og þetta fólk hafi kíkt inn í kaffi og verslað. Júlíus segir að það vanti meira líf við Hafnargötuna fyrir kl. 9 á morgnana. Þá segist Júlíus einnig fá marga veiðimenn beint úr flugstöðinni til sín þar sem þeir kaupi veiðibúnað áður en haldið er í árnar til veiða.

- Þú gefur þig út fyrir mikla persónulega þjónustu við veiðimenn. Hvað ertu að gera fyrir þá?
„Það er allt frá því að þrífa fluguhjólin og línurnar eða skipta um. Gera við stangir og vöðlur og jafnvel ráðleggja mönnum. Ég reyni að gefa eins mikið af upplýsingum og ég get og á meðan búðin er ekki full af fólki þá get ég gengið nokkuð langt í því. Þá hringi ég og fæ upplýsingar um veiðileiðsögumenn, hvar sé best að veiða þannig að menn komi ekki að tómum kofanum“.



Veiðigræjur til leigu

Júlíus er starfsmaður Lax-á á sumrin sem yfirveiðileiðsögumaður og hefur því aðgang að dýrmætum upplýsingum fyrir þá sem eru að fara í veiði. Júlíus leigir mönnum einnig veiðigræjur. „Hingað geta menn labbað inn og fengið leigðar allar helstu veiðigræjur, hvort sem það er stöng, vöðlur, skór eða annað sem þarf í veiðina“.

Það nýjasta í búðinni er þjónusta við skotveiðimenn og er Júlíus farinn að selja byssur, bæði haglabyssur, riffla og loftriffla. Skotvopnin eru ekki sýnileg í búðinni, heldur öll í læstum skápum á bakvið. Of mikill kostnaður fylgir því að setja upp sýningarvegg en þess í stað sýnir Júlíus tilvonandi kaupendum byssurnar stakar. Þá hefur hann í boði sjónauka og annað sem þarf við skotveiðar. Þá er hann einnig með byssuskápa til sölu.

Flugukofinn er opinn alla daga til jóla kl. 10-22. Opið er til kl. 23 á Þorláksmessu og til 12 á hádegi á aðfangadag. Á Þorláksmessukvöld verður viðskiptavinum boðið að bragða á villibráð sem elduð er af meistarakokki en allt hráefnið kemur frá veiðimönnum á Suðurnesjum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024