Viðskipti

ISAVIA með rammasamning við tólf verkfræði- og arkitektastofur
Frá undirritun samninga í dag. VF-myndir: Hilmar Bragi
Föstudagur 24. ágúst 2018 kl. 16:32

ISAVIA með rammasamning við tólf verkfræði- og arkitektastofur

Fulltrúar Isavia og tólf verkfræði- og arkitektastofa, bæði innlendra og erlendra, undirrituðu í dag rammasamning um hönnun og ráðgjöf fyrir verklegar framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. 
 
Stofurnar sem um ræðir eru: Avro, Foster and Partners, KPF, Kælitækni, Lota, Mannvit, Norconsult, Optimum, Teikn, THG, Verkís og VSÓ Ráðgjöf.
 
Helstu hönnunarverkefni sem ráðgerð eru á samningstíma rammasamningsins felast í hugmyndavinnu, hönnun og skýrslugerð fyrir mannvirki og kerfi á skipulagssvæði Keflavíkurflugvallar. Um er að ræða ýmsar breytingar á Flugstöð Leifs Eiríkssonar, nýbyggingar á flugvallarsvæði og endurskipulagningu eða endurhönnun á núverandi byggingum á svæðinu. Samningurinn gildir í þrjú ár með heimild til framlengingar og er boðinn út samkvæmt reglugerð 340/2018 um samningskaup að undangenginni útboðsauglýsingu. Áætlað verðmæti samningsins er á bilinu tveir til fjórir milljarðar króna næstu þrjú árin.
 
Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri tækni- og eignasviðs Isavia:
 
„Við erum virkilega ánægð með útkomu þessa útboðs og hlökkum til samstarfsins við þessa 12 verkfræði- og arkitektastofur. Það er einnig ánægjulegt að sjá að stór hluti þeirra eru starfandi hér á Íslandi sem sýnir hversu öflugur þessi geiri er orðinn. Þessar framkvæmdir eru með þeim stærstu sem lagt hefur verið í hér á landi og er uppbygging og stækkun Keflavíkurflugvallar að okkar mati afar mikilvæg til að stuðla að auknum efnahagslegum vexti hagkerfisins og samfélagsins í heild. Gangi áætlanir eftir munu byggingar í fyrsta fasa framkvæmdanna verða teknar í notkun í áföngum á árunum 2019 til 2021.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024