HSS sumarstörf 14-21 mars
HSS sumarstörf 14-21 mars

Viðskipti

Fyrsta skóflustungan tekin að nýrri ÓB stöð í Reykjanesbæ
Jón og Steinar eftir skóflustungu að nýrri stöð.
Föstudagur 3. mars 2017 kl. 14:49

Fyrsta skóflustungan tekin að nýrri ÓB stöð í Reykjanesbæ

Fyrsta skóflustunga var tekin í dag að nýrri ÓB stöð sem mun standa við Aðalgötu 60 í Reykjanesbæ. ÓB stöðvar eru sjálfsafgreiðslustöðvar í eigu Olíuverzlunar Íslands hf. en fyrsta sjálfafgreiðslustöð félagsins var opnuð í Hafnarfirði árið 1996. Í dag eru sjálfsafgreiðslustöðvarnar yfir þrjátíu talsins víðsvegar um landið. Áætlað er að nýja stöðin opni við Aðalgötu með vorinu.

,,Til að byrja með verðum við eingöngu með sjálfsafgreiðslustöð við Aðalgötu í Reykjanesbæ en markmiðið til framtíðar verður að reisa á lóðinni myndarlega Olís þjónustustöð með því vöruboði sem við höfum upp á að bjóða. Vaxandi fjöldi ferðamanna kallar á stækkun á þjónustuneti félagsins og erum við stolt af því að geta stækkað við okkur hér í Reykjanesbæ,“ segir Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olíuverzlunar Íslands.

Public deli
Public deli

,,Það er mjög ánægjulegt með það að félagið skuli vera að vaxa og eflast í Reykjanesbæ. Hér er mikill vöxtur í ferðaþjónustu og því mikilvægt fyrir okkur að geta mætt þeim vexti með góðri þjónustu en á nýrri stöð verður gott aðgengi fyrir alla viðskiptavini félagsins hvort heldur sem um einstaklingsbifreiðar eða stærri atvinnutæki sé að ræða,“ segir Steinar Sigtryggson, útibússtjóri Olíuverzlunar Íslands á Suðurnesjum.