Viðskipti

AG Seafood og Stolt Sea Farm í samstarf
Þriðjudagur 12. ágúst 2014 kl. 11:33

AG Seafood og Stolt Sea Farm í samstarf

Samningurinn mun tryggja ný störf í Sandgerði

AG Seafood í Sandgerði og Stolt Sea Farm á Reykjanesi hafa skrifað undir þriggja ára samning er varðar verktöku við framleiðslu á öllum afurðum Stolt Sea Farm á Reykjanesi. AG mun annast framleiðslu og pökkun á afurðum Stolt á Reykjanesi en þar hefur Stolt komið upp fullkomnu eldi á Senegal flúru en áætluð framleiðsla á árinu 2015 er um 500 tonn. Afurðirnar eru seldar ferskar á markaði bæði vestan hafs og austan. Langmesti hluti afurðanna verður fluttur út með flugi og mun framleiðslan hefjast seint á árinu 2014.

AG Seafood sérhæfir sig að mestu við veiðar og framleiðslu á flatfisktegundum og er því reynsla félagsins mikil við meðhöndlun flatfiskafurða. Samningur félaganna mun tryggja nokkur ný störf við framleiðslu hjá AG Seafood í Sandgerði en fyrir starfa hjá félaginu um 50 manns við veiðar og vinnslu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024