Mannlíf

Þáði ráðleggingar frá Erni Ævari eða Árnasyni?
Tvífarar: Örn og Hlynur virðast eiga í svipuðum vandræðum.
Þriðjudagur 26. ágúst 2014 kl. 16:11

Þáði ráðleggingar frá Erni Ævari eða Árnasyni?

Á dögunum sögðum við frá Hlyni Valssyni kennara í Sandgerðisskóla sem braut forláta golfkylfu hjá Erni Ævari kylfingi, eftir ráðleggingar frá golfaranum sigursæla. Fregnir af svaðilförum Hlyns rötuðu í síðasta blað Víkurfrétta þar sem mynd af kappanum birtist á baksíðu blaðsins. Víkurfréttamönnum yfirsást hins vegar við uppsetningu blaðsins skemmtileg tilviljun sem gæti vakið bros hjá mörgum. Þannig æxluðust hlutirnir  að mynd af leikaranum góðkunna Erni Árnasyni er einnig á baksíðunni þar sem hann virðist eiga í svipuðum vandræðum og Hlynur. Nú er bara spurning um hvort Hlynur hafi verið að þiggja ráðleggingar frá Erni Ævari eða Erni Árnasyni?

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024