Mannlíf

Pop-up kaffihús opnað í aðalhliðinu
Föstudagur 27. mars 2015 kl. 12:16

Pop-up kaffihús opnað í aðalhliðinu

– opið í dag frá 18-20 og á morgun frá 12-19.

Nemendahópur frá Art, Culture and Technology (ACT) í  MIT háskóla í Cambridge hefur dvalið á Ásbrú í samstarfi við alþjóðlega listrannsóknarverkefnið Checkpoint sem hefur aðsetur í húsakynnum gamla aðalhliðsins.

Verkefni nemendanna er að rannsaka almannarými, tilvist þess og notkun. Nemendur, ásamt kennurunum Gediminas Urbonas og Nomedu Urbonas, hafa síðustu daga verið að kynnast svæðinu og íbúum þess en hluti af verkefninu er að búa til pop-up kaffihús í aðalhliðinu á Flugvallarbraut.

Pop-up kaffihúsið mun vera opið í dag  27. mars frá 18-20 og á morgun laugardaginn 28. mars frá 12-19. Gestum er boðið upp á ókeypis kaffi og heimabakaðar kökur, ásamt því sem live-tónlist verður spiluð og fólk hvatt til að koma með eigin hljóðfæri.

Íbúar Ásbrúar eru sérstaklega velkomnir ásamt öðrum vegfarendum sem hafa tengsl við svæðið og sögu þess.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024