Mannlíf

KK og Ellen í Hljómahöll
Föstudagur 17. október 2014 kl. 07:17

KK og Ellen í Hljómahöll

Jólatónleikar KK og Ellenar hafa verið einn af ómissandi og föstu liðunum í aðdraganda jóla. Í mörg ár hafa þau haldið hefðina og komið saman, ýmist þau tvö eða ásamt hljómsveit sem spilað hefur með þeim.
 
Tónleikarnir hafa verið haldnir víða og þetta árið munu þau meðal annars koma fram í Stapa í Hljómahöll. Þar munu þau ásamt nokkrum af okkar bestu hljóðfæraleikurum flytja mörg okkar ástsælustu jólalög í bland við eigin lög. Einstök aðventustemning skapast á þessum tónleikum þar sem látlaus og hugljúfur flutningur hefur jafnan einkennt þeirra tónlist.

KK og Ellen munu koma fram í Stapa í Hljómahöll ásamt hljómsveit þann 12. desember.

Nánari upplýsingar á www.hljomaholl.is.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024