Mannlíf

ICELAND DEFENSE FORCE - ÁSBRÚ
Laugardagur 6. febrúar 2016 kl. 05:00

ICELAND DEFENSE FORCE - ÁSBRÚ

- Listasafn Reykjanesbæjar opnar ljósmyndasýningu Braga Þórs Jósefssonar

Listasafn Reykjanesbæjar opnar laugardaginn 6. febrúar kl. 14.00 ljósmyndasýninguna ICELAND DEFENSE FORCE – ÁSBRÚ í sýningarsal safnsins í Duus Safnahúsum. „Ára“ yfirgefinna staða er framar öðru viðfangsefni Braga Þórs Jósefssonar ljósmyndara í þessari myndröð sem sýnd er en flestar myndirnar tók Bragi á Keflavíkurflugvelli í kjölfar brottflutnings hersins árið 2006.

Hann sýndi margar þessara ljósmynda í Ljósmyndasafni Reykjavíkur fyrir ári síðan en í tilefni af því að áratugur er nú liðinn frá því „Iceland Defense Force“ hætti að vernda Íslendinga og hvarf af landi brott taldi Listasafn Reykjanesbæjar að þessi sýning ætti sérstakt erindi við Suðurnesjamenn, sem tengdir voru Keflavíkurflugvelli nánari böndum en flestir aðrir Íslendingar. Bragi Þór féllst á að setja upp endurnýjaða útgáfu af sýningu sinni í safninu, með viðauka um hina nýju ásýnd flugvallarsvæðisins, „nýbúana“ sem nú setja  mark sitt á byggingarnar og svæðið sem fegnið hefur hið nýja nafn Ásbrú. Bragi tók því fjölda nýrra ljósmynda þannig að sýningin samanstendur af ljósmyndum teknar á þessu 10 ára tímabili 2006-2016.

Safnið er opið alla daga frá 12.00-17.00 og er öllum bæjarbúum boðið til opnunarteitis 6. febrúar kl. 14.00 í Duus Safnahúsum og sérstaklega þeim sem unnu hjá hernum á sínum tíma. Í tilefni dagsins er ókeypis aðgangur í safnahúsið þennan dag. Við sama tækifæri opnar Byggðasafn Reykjanesbæjar sýninguna Herstöðin sem kom og fór.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024