Karlakórinn
Karlakórinn

Mannlíf

Háskólalestin í Sandgerði
Föstudagur 12. maí 2017 kl. 11:46

Háskólalestin í Sandgerði

- Nemendur Grunnskólans í Sandgerði sóttu meðal annars námskeið í japönsku og vindmyllusmíði

Háskólalestin staldraði við í Grunnskólanum í Sandgerði í morgun. Þar var boðið upp á ýmis námskeið í Háskóla unga fólksins fyrir nemendur í elstu bekkjum grunnskólans. Í boði voru námskeið í blaða- og fréttamennsku, eðlisfræði, efnafræði, japönsku, jarðfræði, leik að hljóði, leyndardómum miðaldahandrita, stjörnufræði, tómstunda- og félagsmálafræði og vindmyllusmíði.

Á morgun verður svo slegið upp heljarinnar vísindaveislu í Grunnskólanum í Sandgerði frá klukkan 12:00 til 16:00 og eru allir velkomnir og aðgangur ókeypis. Rannsóknasetur Háskóla Íslands í Sandgerði tekur þátt í veislunni en þar geta gestir skoðað kynjaverjur úr hafdjúpunum, spreytt sig á alls kyns þrautum, tækjum og tólum, kynnt sér japanska tungu, ferðast um himingeiminn í stjörnutjaldinu, kynnst undrum efnafræðinnar, prófað vindmyllusmíði og gert ýmis konar óvæntar uppgötvanir.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Háskólalestin hefur heimsótt hátt í 30 staði víða um land frá því að henni var ýtt af stað á aldarafmælisári skólans árið 2011. Lestin brunar nú um landið sjöunda árið í röð en áhöfnin hefur frá upphafi lagt áherslu á lifandi og skemmtilega miðlun vísinda til fólks á öllum aldri.