Mannlíf

Gönguferð á Stóra Hrút í Fagradalsfjalli
Miðvikudagur 27. júlí 2016 kl. 09:14

Gönguferð á Stóra Hrút í Fagradalsfjalli

Miðvikudaginn 27. júlí kl 18:00 munu Reykjanesgönguferðir bjóða uppá gönguferð á Stóra Hrút í Fagradalsfjalli. Gengið verður með fjallinu Slögu uppá Langahrygg og þaðan upp á Stóra Hrút sem er 355m þar sem göngufólk fær að njóta útsýnisins yfir Reykjanesskagann.
Gengið verður til baka með Borgarfelli um Nátthaga að Slögu þar sem rútan býður göngufólks.

ATHUGIÐ breyttan brottfarartíma lagt verður af stað kl 18:00

Leiðsögumaður verður Kristín Jóna Hilmarsdóttir  

Gönguferðin hefur erfiðleikastigið **** og er fyrir göngufólk sem treystir sér í góða fjallgöngu.

Gangan tekur u.þ.b. 5 - 6 klst.

Kostnaður: kr 1000 frítt fyrir 12 ára og yngri


Allir velkomnir

Upphafsstaður: Vesturbraut 12, Reykjanesbær  

Hvenær:  kl 18:00

 

Heilræði:

* Göngustafi.

* Drykkjarföng.

* Léttan bakpoka.

* Viðeigandi hlífðarfatnað eftir veðri (t.d. aukapeysu, sokka, vettlinga, húfu).

* Létt nesti (t.d. samloku, ávexti, kex).

* Góðir gönguskór.

* Góða skapið.


Öryggisupplýsingar:

Fararstjóri í er Kristín Jóna Hilmarsdóttir

Símanúmer fararstjóra er 697 7444

Félagar úr Björgunarsveitinni Suðurnes eru með í öllum gönguferðum sumarsins og taka þátt í að hafa yfirsýn yfir hópinn, sjá um skyndihjálparviðbrögð skyndihjálparviðbrögð, er ráðgefandi varðandi frávik í göngunni. Ef neyðartilvik verður sér björgunarsveitarfólk alfarið um að stýra aðgerðum.

Nota 112 appið ef göngufólk er með það í símanum. Kveikja á því í upphafi göngu. Það gefur upp staðsetningu og auðveldar að ná í 112 ef þess gerist þörf.

Göngufólk meti eigið líkamlegt atgervi og komi ekki nema það treysti sér til.

Göngufólk er á eigin ábyrgð í gönguferðunum.

Leiðsögn fer fram á íslensku.

Aldrei skal yfirgefa hópinn. Við förum saman af stað og komum saman til baka.

Ef af einhverjum ástæðum einhver þarf að fara skal láta fararstjóra vita, ástand er metið og viðkomandi fær fylgd til baka eða allur hópurinn snýr við.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024