Mannlíf

FS ingur vikunnar: Stefnir á landsliðið í ólympískum lyftingum
Laugardagur 27. október 2018 kl. 03:00

FS ingur vikunnar: Stefnir á landsliðið í ólympískum lyftingum

Arnar Thanachit er tvítugur nemandi á íþróttabraut við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hann flutti til Íslands frá Tælandi þegar hann var átta ára. Arnar er metnaðarfullur og æfir ólympískar lyftingar.


Hver er helsti kostur FS? Ég myndi segja að helsti kosturinn sé félagslífið.

Hver eru áhugamálin þín? Helstu áhugamálin mín vita örugglega allir en það eru ólympískar lyftingar, crossfit og byssur.

Hvað hræðistu mest? Köngulær og snáka.

Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Myndi segja ég sjálfur en það væri sjálfselskt, þannig að ég segi Perla Sóley sem er frábær söngkona.

Hver er fyndnastur í skólanum? Ólafur Bergur Ólafsson.

Hvað sástu síðast í bíó? The Predator.

Hvað finnst þér vanta í mötuneytið? Það vantar Nocco í mötuneytið allan daginn!

Hver er helsti galli þinn? Ég lýg ótrúlega mikið, það er helsti galli minn og ég hata það.

Hver er helsti kostur þinn?  Ég er mjög metnaðarfullur.

Hvaða þrjú öpp eru mest notuð í símanum þínum? Instagram, Snapchat og Messenger.

Hverju myndi þú breyta ef þú værir skólameistari FS? Setja meiri pening í nemendafélagið og taka þessar nýju blessuðu mætingarreglur burt.

Hvaða eigineiki finnst þér bestur í fari fólks? Persónuleikinn.

Hvað finnst þér um félagslífið í skólanum? Það er geðveikt!

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hver er stefnan í framtíðinni? Stefnan er að komast í landsliðið í ólympískum lyftingum og keppa á Ólympíuleikunum, verða frábær pabbi og kírópraktor.

Hvað finnst þér best við að búa á Suðurnesjum? Er búinn að eiga heima hérna síðan ég var átta ára og það er bara svo rólegt og kósý að búa hér.

Uppáhalds-

kennari?  Andrés íþróttakennari.

skólafag? Stærðfræði.

sjónvarpsþættir? Flash

kvikmynd? Predator

hljómsveit / tónlistarmaður? 5 Seconds of Summer

leikari? Arnold Scwarzenegger