Mannlíf

Aldargamalt kvenfélag með jólatrésskemmtun í Garði
Þriðjudagur 26. desember 2017 kl. 10:00

Aldargamalt kvenfélag með jólatrésskemmtun í Garði

Kvenfélagið Gefn býður Garðmönnum nær og fjær á jólatrésskemmtun sem haldin verður í Miðgarði Gerðaskóla í Garði laugardaginn 30. des. n.k. frá kl. 15.00 – 17.00.
 
„Nú eins og ævinlega ætlum við að dansa í kringum jólatréð við fjöruga tónlist og söng og njóta veitinga í boði kvenfélagskvenna. Að venju kemur jólasveinninn í heimsókn með glaðning í poka handa kátum krökkum. Garðbúar, gestir og gangandi, mætum öll í jólaskapi með börnunum og höfum gaman saman,“ segir í tilkynningu. 
 
Enginn aðgangseyrir er að jólatrésskemmtuninni sem kvenfélagskonur í Garði hafa haldið í áratugi en Kvenfélagið Gefn fagnaði 100 ára afmæli sínu fyrr í mánuðinum.
 
Mynd af börnum á jólaballi kvenfélagsins Gefnar jólin 2013. Mynd: svgardur.is
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024