Mannlíf

Áhugavert Suðurnesjamagasín á dagskrá í kvöld
Fimmtudagur 14. febrúar 2019 kl. 16:45

Áhugavert Suðurnesjamagasín á dagskrá í kvöld

Suðurnesjamagasín er á dagskrá Hringbrautar og vf.is á fimmtudagskvöld kl. 20:30. Viðfangsefni okkar eru tvö að þessu sinni. 
 
Við förum í heimsókn á Dýralæknastofu Suðurnesja þar sem við fylgjumst með geldingu, ófrjósemisaðgerð og tannsteinshreinsun ásamt því að ræða við dýralækna á staðnum. 
 
Í síðari hluta þáttarins förum við á Ásbrú og kynnum okkur nýtt nám til stúdentsprófs í tölvuleikjagerð við Menntaskólann Ásbrú.

Að neðan má sjá stiklu um þátt vikunnar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024