Fréttir

  • Vogamenn ekki nógu duglegir í bólinu
  • Vogamenn ekki nógu duglegir í bólinu
    Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri í Vogum veltir því fyrir sér hvort Vogamenn þurfi að fylgja fordæmi að vestan og efna til ástarviku.
Föstudagur 31. október 2014 kl. 10:25

Vogamenn ekki nógu duglegir í bólinu

– slá slöku við í barneignum og þurfa ástarviku

Samkvæmt tölu Hagstofunnar bjuggu 1.118 íbúar í Vogum um mitt árið. Þá hafði bæjarbúum fækkað um 11 manns frá áramótum. Í vikulegu fréttabréfi bæjarstjórans í Vogum, sem kom út í morgun, segir að áhugavert sé að skoða fjölda barna í hverjum árgangi.

Í grunnskólanum eru tæplega 200 nemendur í 10 árgöngum, svo meðaltal í árgangi er um 20 nemendur. Í árgöngum leikskólabarna eru eilítið færri nemendur að meðaltali í árgangi, eða liðlega 17 börn.

Það sem vekur hins vegar athygli að börn á fyrsta ári eru einungis 6 talsins samkvæmt gögnum Hagstofunnar.

„Vogabúar eru því eitthvað að slá slöku við í barneignum. Við ættum e.t.v. að taka Bolvíkinga okkur til fyrirmyndar og efna til ástarviku?,“ segir Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri í Vogum í fréttabréfinu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024