Leikfélag Keflavíkur
Leikfélag Keflavíkur

Fréttir

Úri að verðmæti 370 þúsund stolið
Föstudagur 21. september 2018 kl. 12:37

Úri að verðmæti 370 þúsund stolið

- Þrír handteknir og úrið fannst innan klæða

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í fyrradag þrjá karlmenn vegna rannsóknar á máli er kom upp þegar úri að verðmæti 370 þúsund krónur var stolið úr úra- og skartgripaverslun í umdæminu. Upptökur úr eftirlitsmyndavélum í versluninni leiddu til handtöku tveggja af mönnunum og voru þeir færðir til skýrslutöku á lögreglustöð. Hinn þriðji var svo grunaður um að hafa hnuplað úrinu úr húsnæði annars hinna tveggja fyrrnefndu. Við leit á honum fannst úrið innan klæða hans.
 
Lögregla gerði húsleit vegna málsins, að fenginni heimild, og þar fundust meint fíkniefni víðs vegar í viðkomandi húsnæði, auk hnúajárns og hnífs.
Public deli
Public deli