Fréttir

Tveir með kókaín í FLE
Mánudagur 22. september 2014 kl. 10:09

Tveir með kókaín í FLE

Tvö kókaínmál eru nú til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurnesjum, sem bæði komu upp fyrr í mánuðinum. Íslenskur karlmaður, sem kom frá Kaupmannahöfn, reyndist vera með 200 grömm af kókaíni meðferðis þegar tollverðir stöðvuðu hann í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Efnin hafði hann falið innan klæða. Hann sætir nú gæsluvarðhaldi. Daginn eftir stöðvuðu tollverðir annan karlmann, einnig íslenskan, sem var að koma frá Amsterdam. Hann var með um 150 grömm af kókaíni. Hluta af efnunum hafði hann falið innan klæða og hluta bar hann innvortis.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024