Fréttir

Sundlauginni lokað að hluta til í Reykanesbæ
Þriðjudagur 15. júlí 2014 kl. 10:52

Sundlauginni lokað að hluta til í Reykanesbæ

Á næstu vikum fara fram viðhaldsframkvæmdir í Sundmiðstöðinni  í Reykjanesbæ og af þeim sökum verður nauðsynlegt að loka hluta lauganna, vatnagarði og heitu pottunum.

Innisundlaugin verður lokuð frá 14. júlí  til 5. ágúst. Vatnsleikjagarðurinn verður lokaður frá 16. júlí til 5. ágúst. Útilaugin og rennibrautarlaugin verða lokuð frá 5. ágúst  til 1. september.
Innilaugin verður opin almenningi eftir 5. ágúst.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024