Fréttir

Sextán íbúðir í byggingu í Grindavík
Í gær var byrja að reisa eitt af fjórum parhúsum í Norðurhópi. Mynd af vef Grindavíkurbæjar.
Miðvikudagur 18. júlí 2012 kl. 09:33

Sextán íbúðir í byggingu í Grindavík

Alls eru 16 íbúðir í parhúsum og raðhúsum í byggingu í Grindavík, eða framkvæmdir um það til að hefjast. Verktakarnir Grindin, HH smíði og Trésmiðja Heimis eru að byggja í Norðurhópi og Miðhópi.

Svo virðist sem ágætur markaður sé fyrir þessu húsnæði því eitthvað er búið að selja af nýsmíðinni.

Trésmiðja Heimis fékk úthlutað fjórum parhúsalóðum í Norðurhópi. Í gær var byrjað að reisa fyrsta parhúsið en íbúðirnar eru um 160 fermetrar með bílskúr. Búið er að selja eitthvað af íbúðunum.

Grindin er að byggja raðhús myndarleg raðhús með 3 íbúðum í Norðurhópi 19-23 og þegar búið að selja a.m.k. eina íbúðina.

HH smíði hefur fengið úthlutað í Miðhópi 1-9 en þar á að byggja raðhús með 5 íbúðum. Þessar íbúðir eru um 80 fermetrar og því kjörnar fyrir þá sem eru að byrja búskap.

Áhugasamir kaupendur eru hvattir til þess að setja sig í samband við verktakana.

Þá hefur verktakinn Sparri einnig verið að byggja en hefur keypt töluvert af eldra húsnæði til þess að gera upp og selja, segir á heimasíðu Grindavíkurbæjar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024