Fréttir

Reyndu að stela hreindýraskinni úr Bláa lóninu
Föstudagur 6. maí 2016 kl. 11:09

Reyndu að stela hreindýraskinni úr Bláa lóninu

Lögreglunni á Suðurnesjum var tilkynnt um þjófnað úr verslun Bláa lónsins síðdegis í fyrradag. Þar voru á ferðinni tveir erlendir ferðamenn sem voru að skoða vörur og reyndu svo að hnupla hreindýraskinni. Verð á því er um 25.000 krónur. Skinnið var óskemmt þegar starfsfólk verslunarinnar fékk það aftur í hendur og var lögregla beðin um að vísa mönnunum út af svæðinu, sem hún og gerði.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024