Fréttir

Ósakhæfir og farnir af landi brott
Föstudagur 13. janúar 2017 kl. 11:16

Ósakhæfir og farnir af landi brott

Um kl. 16 í gærdag var óskað eftir lögregluaðstoð að strætisvagnastöð við Krossmóa í Reykanesbæ vegna manns sem hefði leitað á unga stúlku í strætisvagni. Nokkrir unglingar voru í vagninum sem höfðu orðið vitni að þessari ósæmilegu hegðun mannsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Lögreglan hafði upp á þeim grunaða sem reyndist vera jafnaldri stúlkunnar, 14 ára gamall drengur sem hafði verið í vagninum ásamt öðrum dreng á svipuðu reki. Munu drengirnir hafa haft ákveðna samvinnu við að króa stúlkuna af í sæti sínu en aðeins annar þeirra áreitt hana. Þá mun drengurinn hafa slegið til og kastað flösku í dreng sem hafði afskipti af honum vegna málsins.

Drengurinn var færður á lögreglustöð þar sem rætt var við hann að fulltrúa barnaverndarnefndar viðstöddum.

Í tengslum við málið bárust lögreglu þær upplýsingar að síðastliðinn mánudag hefði hinn drengurinn, sá sem ekki hafði sig í frammi í þessu tilviki, viðhaft svipaða hegðun í strætisvagni gagnvart annarri stúlku.

Drengirnir eru börn og ósakhæfir vegna aldurs og verður því ekki aðhafst frekar í málum þeirra af hálfu lögreglu. Þeir voru hælisleitendur hér á landi en munu hafa farið af landi brott í nótt.

Frétt Víkurfrétta frá því í gærkvöldi um málið.

Public deli
Public deli