Fréttir

Ók undir áhrifum fíkniefna með tvö börn í bílnum
Þriðjudagur 29. janúar 2019 kl. 16:42

Ók undir áhrifum fíkniefna með tvö börn í bílnum

Nokkrir ökumenn hafa verið teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. Í fyrrinótt reyndi einn þeirra að komast undan lögreglu eftir að honum höfðu verið gefin merki um að stöðva aksturinn. Hann var handtekinn og játaði kannabisneyslu. Í bifreið hans fundust kannabisefni. Hann ók að auki sviptur ökuréttindum.

Annar ók með tvö ung börn sín í bifreiðinni og var atvikið því tilkynnt barnaverndarnefnd. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð vegna rökstudds gruns um fíkniefnaakstur.

Hinn þriðji hafði aldrei öðlast ökuréttindi og sá fjórði var með meint amfetamín í vörslum sínum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024