Fréttir

Ók á blómaker og festist á umferðarskilti
Mánudagur 6. júlí 2015 kl. 14:00

Ók á blómaker og festist á umferðarskilti

Það óhapp varð um helgina að ökumaður, sem missti athyglina við aksturinn, ók á blómaker og umferðarskilti í Reykjanesbæ. Blómakerið færðist út á akbrautina við höggið og bíllinn reyndist sitja fastur uppi á umferðarskiltinu, þegar lögreglumenn á Suðurnesjum bar að. Gerðar voru ráðstafanir til að fjarlægja blómakerið og skiltið, en áður en til þess kom var dráttarbifreið fengin til að fjarlægja bílinn ofan af því þar sem hann var óökufær. Ökumaðurinn slapp ómeiddur.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024