Fréttir

Ók á bifreið og velti henni
Mánudagur 29. september 2014 kl. 11:56

Ók á bifreið og velti henni

Fimm umferðaróhöpp urðu í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Einn ökumannanna ók af hliðargötu  yfir gatnamót, þar sem umferðarljós voru óvirk. Hann ók á bifreið, sem ekið var eftir aðalgötunni og valt hún við áreksturinn.

Þá lentu tvær bifreiðar saman á gatnamótum Njarðarbrautar og Hjallavegar.

Loks bökkuðu tveir ökumenn á kyrrstæðar bifreiðar og einn til viðbótar ók utan í bifreið, sem einnig var kyrrstæð.

Engin slys urðu á fólki vegna þessara óhappa.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024