Fréttir

Ók á 170 km hraða með ungt barn í bílnum
Mánudagur 30. apríl 2018 kl. 09:17

Ók á 170 km hraða með ungt barn í bílnum


Ökumaður sem mældist aka á 170 km hraða á Reykjanesbraut í gær var sviptur ökuréttindum á staðnum. Einnig var send tilkynning til barnaverndarnefndar þar sem hann var með ungt barn í bílnum.
Þá fjarlægði lögreglan á Suðurnesjum skráningarnúmer af sjö bifreiðum um helgina, en þær voru ýmist óskoðaðar eða ótryggðar.

Átta ökumenn voru teknir úr umferð vegna gruns um fíkniefna - eða ölvunarakstur. Einn þeirra var með kannabisefni á gólfi bifreiðar sinnar og annar hafði áður verið sviptur ökuréttindum.
Afskipti voru svo höfð af ökumönnum sem virtu ekki stöðvunarskyldu eða töluðu í síma án handfrjáls búnaðar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024