Fréttir

Ofbeldisbrotum á Suðurnesjum fækkar milli ára
Miðvikudagur 1. október 2014 kl. 09:05

Ofbeldisbrotum á Suðurnesjum fækkar milli ára

Veruleg fækkun hefur orðið á ofbeldisbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum það sem af er þessu ári samanborið við sama tímabil á síðasta ári.

Samkvæmt bráðabirgðatölum voru ofbeldisbrot á fyrstu níu mánuðum ársins samtals 72. Á sama tíma árið 2013 voru þau 100 talsins. Líkamsárásum fækkaði milli ára úr 73 málum í 57. Málum er flokkast undir meiri háttar líkamsárás fækkaði úr fimmtán í fjögur og stórfelldum líkamsárásum fækkaði úr tólf í tíu. Eitt af áhersluverkefnum lögreglunnar á Suðurnesjum í Ársáætlun 2014 er fækkun ofbeldisbrota m.a. með öflugu eftirliti, sýnileika og forvarnarstarfi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024