Fréttir

Leikskólinn Holt hefur hlotið titilinn eTwinning skóli fyrstur leikskóla
Þriðjudagur 17. apríl 2018 kl. 10:02

Leikskólinn Holt hefur hlotið titilinn eTwinning skóli fyrstur leikskóla

Leikskólinn Holt hlaut á dögunum titilinn eTwinning skóli, fyrstur leikskóla á Íslandi. Aðrir skóla sem hlutu þennan titil eru Stóru-Vogaskóli, Flataskóli og Grunnskóli Bolungavíkur. Viðurkenningin byggist á öruggri netnotkun og breiðri þátttöku í eTwinning og alþjóðasamstarfi.

Viðurkenningin kemur frá landsskrifstofa eTwinning verkefnisins. Tekið er fram að hin breiða þátttaka vísi til þess að þátttaka byggist ekki á framtaki einstakra kennara heldur sé markviss, njóti stuðning skólastjórnenda og nái til fjölda nemenda.
Að gerast eTwinning skóli er liður í skólaþróun, segir í umsögn Landsskrifstofu. Fyrir utan að eflast enn frekar í notkun upplýsingatækni og alþjóðasamstarfi hafa

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

eTwinning skólar tækifæri til styrkja starfsþróun kennara og skólastjórnenda auk alþjóðatengsla skólans:

Skólinn verður sýnilegri í skólasamfélagi eTwinning

Fær tækifæri til að mynda tengsl við aðra eTwinning skóla í Evrópu - verður hluti af evrópsku neti eTwinning skóla

Aukin tækifæri til starfsþróunar í boði fyrir kennara og skólastjórnendur skólans
Viðurkenningin er til tveggja ára í senn. Næst verður opnað fyrir umsóknir í byrjun árs 2019.