Fréttir

  • Isavia heldur samráðsfund um gerð deiliskipulags
  • Isavia heldur samráðsfund um gerð deiliskipulags
Þriðjudagur 25. október 2016 kl. 09:45

Isavia heldur samráðsfund um gerð deiliskipulags

- fyrir vestur- og austursvæði Keflavíkurflugvallar

Isavia vinnur nú að gerð deiliskipulags fyrir vestur- og austursvæði Keflavíkurflugvallar. Tillögurnar liggja fyrir í drögum og kallar Isavia því eftir samráði við hagsmunaaðila svæðanna.
 
Kynningarfundur og vinnustofa verður haldinn í Hljómahöll í dag, þriðjudaginn 25. október klukkan 13.00-16.00. Þar verða drög að deiliskipulagstillögum kynnt og ábendingum þátttakenda safnað saman í vinnuhópum.
 
Áhugasamir um uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli eru hvattir til þess að mæta á vinnufundinn. Óskað er eir skráningum á netfangið [email protected]
 
Forkynning stendur yfir til 15. nóvember. Á meðan á forkynningartímabili stendur er hægt að senda ábendingar á [email protected]


 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024