Fréttir

ÍAV byggir tengivirki fyrir Landsnet í Helguvík
Tölvumynd af Stakki, tengivirki Landsnets í Helguvík sem verður tilbúið í árslok.
Föstudagur 17. apríl 2015 kl. 15:30

ÍAV byggir tengivirki fyrir Landsnet í Helguvík

Landsnet undirritaði í dag samkomulag við Íslenska aðalverktaka (ÍAV) um byggingu á nýju tengivirki Landsnets í Helguvík sem fengið hefur nafnið Stakkur. Samningurinn hljóðar upp á 341 milljón króna og er miðað við að framkvæmdum verið að fullu lokið í árslok 2015.
 
Nýja tengivirkið er við hlið kísilvers United Silicon (USi) við Stakksbraut og hannað með hugsanlega stækkun í huga. Þrír 132 kV rofar verða í tengivirkinu og tveir spennar, annar sem tengist kísilverinu og hinn í eigu HS Veitna. Verkið felur í sér jarðvinnu og byggingu óeinangraðs stálgrindarhúss yfir rofabúnaðinn, byggingu steyptra spennarýma með stálgrindarþaki og byggingu steypts einangraðs stjórnbúnaðarhúss. Húsin verða sambyggð á einni hæð, samtals 750 fermetrar að grunnfleti. Samningurinn hljóðar upp á 341 milljón króna og skal verkinu að fullu lokið fyrir næstu áramót.
 
Undirbúningur tengivirkisins Stakks hófst hjá Landsneti haustið 2014 í framhaldi af samningi um flutning raforku til kísilvers USi í Helguvík. Hann kveður á um að tengingin verði tilbúin 1. febrúar 2016 en auk nýja tengivirkisins Stakks, felur verkefnið í sér uppsetningu á nýjum rofa í tengivirkinu á Fitjum og 9 km langan 132 kV jarðstreng milli Fitja og Helguvíkur. Gengið var frá samningum um kaup á jarðstreng og spenni árið 2014. Samið var við þýska fyrirtækið Nexans um jarðstrengskaupin og verður hann lagður sumarið 2015.



Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, og Karl Þráinsson, forstjóri ÍAV, við undirritun samkomulagsins í dag.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024